Könnunin hér að neðan er um þennan mann, en það er ekkert víst að fólk þekki hann. Reyndar er könnunin svolítið vanhugsuð þar sem það eru tveir möguleikar fyrir það sama. Þ.e.a.s. “Dio” og “sóló” er það sama. Dio er sóló projektið hans…

Dio varð frægur hér í den þegar hann söng með ekki ófrægari sveitum en Rainbow og Black Sabbath. Svo gaf hann út (og gerir enn) sóló-plötur sem sköpuðu honum miklar vinsældir. Platan Holy Diver frá 1983 er líklegast sú þekktasta, en hann hefur gefið út einar 8 sólóplötur, þar af síðast árið 2000 með Magica. Hann er svo að vinna að nýrri plötu núna, sem á að koma út í maí.

Það sem gerir Dio einnig merkilegan var að á tímabili (löngu tímabili) var hann þekktur sem “The Voice of Metal”, s.s. einn dáðasti söngvarinn í metalnum, sem er alveg hárrétt því maðurinn er með mikla og góða söngrödd.

Þið getið chekkað á heimasíðunni hans:
http://www.ronniejamesdio.com/
fyrir meira info
Resting Mind concerts