Skyfire - Timeless Departure (í anda CoB) Ef að þið eruð að fíla tónlistina sem að Children of Bodom eru að gera, þá er næsta öruggt að þið komið til með að fíla sænsku hljómsveitina Skyfire.

Þessi sveit er alveg mögnuð að mínu mati, er að gera (aftur að mínu mati) ennþá flottari tónlist en Children of Bodom og eru einungis 19 - 22 ára (þeir eru fimm, þar af þrír sem eru 21 árs).

Tónlist Skyfire er jafnvel enn meira klassík-skotin en COB, ennþá sinfónískari og meira lagt uppúr orchestrations.

Þeir hafa gefið út eina plötu sem heitir Timeless Departure og einhver demó.

Á heimasíðu þeirra, http://listen.to/skyfire er hægt að downloada tveimur hljóðdæmum (ekki full lög) af þessari plötu þeirra.

Kíkið á þetta!
Resting Mind concerts