Svampbotn (grunnuppskrift)
Hringform, 20-22 cm
Undirbúningur: um 10 mín.
Bökunartími: um 50 mín.
Ofnhiti: 180 °C
Miðrim í ofni
Má frysta
3 egg
2 msk vatn
175 gr sykur (2 dl)
60 gr hveiti (1 dl)
5 sléttfullar msk kartöflumjöl
½ tsk hjartarsalt eða
¾ tsk lyftiduft
1. Þeytið eggin vel og bætið sykrininum við. Þeytið uns sykurinn bráðnar og hræran verður loftkennd.
2. Sigtið hveitið og kartöflumjölið ásamt hjartarsaltinu eða lyftidufti og blandið varlega í hræruna. Hrærið 2 msk af sjóðandi vatni út í.
3. Smyrjið og stráið lítið springform og látið deigið í. Bakið og látið kökuna standa í smá stund í forminu áður en hún er kæld á rist.