Tekið af eldhus.is

Ég hef gert þessar kökur nokkrum sinnum og algjört spari spari! Bara eitthvað sem maður notar á jólunum eða við alveg sérstakt tilefni, enda þarf maður að fara varlega svo að þetta misheppnist ekki, eins og t.d. passa að þú bræðir súkkulaðið við vægan hita:) En þetta er svona lítil kaka sem að skúkkulaðið rennur úr.. alveg namm namm! *slef* og allt sko hehe:) Mæli með að prufa þetta!:)

Litla Syndin ljúfa

Góður og einfaldur eftirréttur sem allir ættu að gera

140 g smjör, og meira til að smyrja formin
140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði
2 egg
3 eggjarauður
140 g flórsykur
60 g hveiti
LITLA SYNDIN
140 g smjör, og meira til að smyrja formin
140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði
2 egg
3 eggjarauður
140 g flórsykur
60 g hveiti

Hitið ofninn í 220 gráður (ekki nota blástur). Smyrjið 6 lítil soufflé-form eða bolla vel með smjöri ( Ef notuð eru annars konar form er ráð að prófa að baka eina synd til að bökunartíminn passi örugglega.) Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita. Takið af hitanum um leið og smjörið er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel. Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við. Skiptið deiginu jafnt í formin (rúmlega 1 dl í hvert form) og gætið þess að fylla þau ekki alveg. Setjið formin á plötu eða í ofnskúffu og bakið kökurnar í 11-12 mínútur (án blásturs). Ef deigið hefur verið geymt í kæli þá er bökunartíminn 13-14 mín (jafnvel 15 mín. ef það var í formunum og í kæli). Takið þær út og látið kólna í 3 mínútur. Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa betur um þær og hvolfið þeim á diska. Sigtið e.t.v. svolítinn flórskykur yfir og berið kökurnar fram t.d með hindberja- eða vanillusósu og e.t.v berjum eða öðrum ávöxtum.




Gott að bera fram með vanilluís

Bætt við 18. október 2006 - 15:24
Ætlaði að nefna það að ég hef reyndar stolist til að baka með blæstri, því að það er eitthvað að ofninum hjá mér, og þá hef ég þetta í 9-10 mínútur og ekki styttra né lengra.