Eldhúsreglur

Hehe,smá snilld sem ég fékk sent frá mákonu minni í Svíþjóð,hún vildi nú kalla þetta nýtt veggskraut í eldhúsið ;)


Eldhúsreglur

1.gr.
Í þessu eldhúsi er öll neysla áfengis stranglega bönnuð.

2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði fyrstu greinar er heimilt að neyta hvítvíns með fiski.

3. gr.
Til hvítvíns teljast í reglum þessum allir drykkir með áfengisinnihald að
hámarki 2,25% eða meira.

4. gr.
Fiskur, samkvæmt annarri grein reglna þessarra, telst allur matur nema
hafragrautur.

5. gr.
Verði hafragrautur á borð borinn skal hann þó einnig teljast fiskur.

6. gr.
Sé enginn matur á borð borinn, fellur fyrsta grein reglna þessarra úr
gildi.
Kveðja