Hérna er ein ostakaka sem er rosalega góð, en þvílíkt auðveld.

12 hafrakexkökur, muldar
1 msk sykur
100 gr smjörlíki

Þetta er hitað á pönnu og sett í form

1 bolli flórsykur
400 gr rjómaostur
lítil dós ananaskurl (líka safinn)
1 msk sítrónusafi

Hrært vel saman og sett í formið

Þeytið 1 pela af rjóma og hrærið honum út í ostablönduna með sleif og restina af rjómanum síðan ofan á kökuna.

Skreytið td með kíwí og/eða ananas