Gulrótakaka Þetta er frekar einföld, en samt rosalega góð gulrótakaka…

Botn:
2 egg
2 dl sykur
2 dl hveiti
1-2 tsk vanillusykur
1 tsk natron
1 tsk lyftiduft
3 dl gulrætur
1 dl matarolía

Krem:
2 dl flórsykur
1 msk borðsmjör
200 gr rjómaostur
1 tsk vanillusykur

En athugið að þetta er fyrir einn botn, í 2fald köku þarf því að 2falda allt, líka kremið…

meðhöndlun á botninum:
Öllu hrært saman, gulræturnar síðast.

Bakað í 40 mín við 175° í miðjum ofni

kremið sett á þegar kakan hefur kólnað vel. Bæði er gott að skreyta kökuna með rifnum gulrótum og eins með möndlum.

Verði ykkur að góðu!! :)