Verð að gefa ykkur uppskrift af nýstárlegu,rosa góðu salati sem ég ætla að bjóða uppá í fjölskylduboði á nýársdag……það er þannig að hver fjölskylda kemur með eitthvað sniðugt á kaffihlaðborð,en ég get svosem alveg eins séð þetta fyrir mér í gamlárskvöldspartýinu-bragðmikið-matarmikið og mjög gott :)

well hér koma herlegheitin:

1 lítil dós majones
1 dós sýrður rjómi
Ananaskurl (ekki safinn)
Blá vínber og græn vínber e.smekk, skorin í tvennt
1 stk. rauð paprika
1 stk. græn paprika
¼ stk. blaðlaukur, smátt skorinn
1 stk. mexíkóostur
1 stk. hvítlauksostur

Majones og sýrður rjomi er hrært saman og ananaskurlinu bætt útí. Allt hitt skorið í bita og síðan hrært saman við sósuna.
- borið fram með Ritzkexi

verði ykkur svo að góðu og góða skemmtun á gamlárs/nýárskvöld ;)

kveðja
harpajul
Kveðja