Það er ótrúlegt, hversu öflugir Shaolin Munkarnir eru, þvílíkur er ónátturuleikinn. Ég nefni sem dæmi:
Einn af mjög virtum munkum samtímans, (sem þó er dáinn) hafði náð þeim styrk, að jafnvel þegar hann var nánast níræður, gat hann staðið aðeins á einum fingri, á einum fingri, þ.e.a.s. vísifingri.

Þeir hafa náð svo miklu valdi á Ki orkunni, að þeir þola spjót sem eru þrýst í hálsinn á þeim, eða þeir liggja ofan á einu spjóti sem stungið er í magann.
Enda eru æfingarnar mjög strangar, aldrei má Shaolin munkur hætta að æfa sig, þegar hann eldar, notar hann sjálfan sig sem bretti til að saxa matinn, sumir sofa á tveimur böndum, vafinn um fæturnar svo þeir detti ekki niður, aðrir sofa í Lotus og enn aðrir sofa á hvolfi.

Það er einnig til ákveðin æfing, þar sem þeir binda nokkurs konar járntunnu, (ekki hola að innan) við eistun á sér, og svo draga þeir tunnuna ákveðna vegalengd til styrktar, enda þola þeir högg og spörk í klofið eins og ekkert, þegar þeir eru búnir að undirbúa sig.

Það væri hægt að halda svona endalaust áfram, en þið getið séð þetta allt betur, ef þið finnið/eða sjáið sýningu með þeim,(hefur verið sýnt á Eurosport) eða sjáið t.d. heimildarmynd um þá sem heitir:
Jet Li and the Shaolin Kung Fu (að mig minnir)

Það er reyndar mjög erfitt að komast yfir heimildarmyndina, fæst jafnvel bara í bandaríkjunum eða austurlöndum.