það er bara gott að það sé annan hvern dag, sjáðu td á /humor þar sem eru alltof margar myndir samþykktar í einu og allt farið í klessu. Miklu sniðugra að hafa þetta eins og þetta er hér..
koma samt svo margar myndir. Núan eru 27 í biði. Það eru alveg 2-3 mánuðir þangað til það klárast. bætist síðan alltaf við. Finnst allavega að það ættti að vera ein á dag.
"An eye for an eye makes the whole world blind." - Ghandi
þá verður að taka harðar á myndum. Undanfarið hafa komið nokkrar myndir sem mátti alveg sleppa að posta, hreint ekkert merkilegar svo ef harðar verður tekið á þessu þá á þetta alveg eftir að virka..
Ég hef verið mjög duglegur við að ritskoða myndirnar og minnka þannig biðina allt frá því að ég byrjaði sem admin hérna. Nánast má segja að hér hafi næstum allt verið birt áður fyrr, en miðað við allar myndirnar sem berast áhugamálinu þá er ekki hægt að stjórna með öðrum hætti en þeim að sigta út áhugaverðustu myndirnar og eyða þeim lítt áhugaverðari.
Ég hef fengið ófá skilaboð þar sem ég er krafin mikils rökflutnings fyrir því að eyða einhverju screenshotti sem til dæmis sýnir Christiano Ronaldo skora 20 mörk á tímabili. Það vita allir að svona menn eins og hann eru í heimsklassa og það er ekkert merkilegt við svona skjáskot sem hafa ekkert nýtt eða áhugavert fram að færa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..