Sælir Cm félagar.

Núna er ég orðinn snælduvitlaus !!!!! Ég fékk þessi villuboð

“could not load save file” vitið þið hvað gæti verið að ? Ég er með Liverpool á tímabilinu 2007/2008 og er búinn að vinna meistaradeildina undanfarin tvö ár.

Ég vann Man United 3-1 árið 2005 og varð evrópumeistara og síðan Juventus í úrslitaleik seinna árið jafnaði 2-2 á 90 mín og diouf setti 4 mörk í framlengingu og ég vann þannig samanlagt 6-2. Nú kemst ég ekki lengur inn í seivið. Ég veit ekki hvað kom fyrir. Veit einhver hvað gæti verið að ? Síðan þótt að ég sé 250.000 - 300.000 undir launa mörkunum sem liðið ákveður þá tapar liðið peningum þvílíkt. Hafið þið lent í svipuðu vandamáli ? Endilega látið mig vita.