Hvernig bregðist þið yfirleitt við þegar einhver af ykkar mönnum er með almenn leiðindi.

Dæmi: Ég keypti ítalskan 20ára varnarmann, algjöran snilling. Hann var rekinn útaf í einum leik fyrir að kýla andstæðinginn beint á túllann.

Núh, ég gef honum vitanlega “Official warning” fyrir “Dismissal in …”.

Við þetta verður hann meira en lítið fúll og segist búast við sérstakri meðferð þar sem hann er hluti af aðalliðinu.

Hvernig á að taka á svona fólki, sérstaklega þar sem maðurinn er algjört séní ???