Ég vona að menn (og konur augljóslega…) séu sátt við leikmanna og sögukubbana, gott framtak hér á ferð.
Það efni sem komið er þar inn ætti að gefa góða mynd af því hvernig efni við viljum fá, sjáið bara leikmannalýsingarnar hjá Hvata og sögurnar hjá Pires.
Ef ykkur langar til að bæta ykkar sögum eða leikmönnum inn, þá sendið tilbúna grein í email á einhvern adminin hérna (í það minnsta mig) og við gefum ykkur leyfi til að pósta þeim greinum inn á kubbana, ef þær eru nógu góðar. Að venju skal líka vanda stafsetningu, ég er stafsetningarfrík svo að passið ykkur ;)
Aðrar uppástungur, hugmyndir, ljóð, fréttir eða jólagjafir mega líka endilega koma í til okkar, lengi má gott batna og allt það.

Takk fyrir mig og gleðilegan desember þangað til næst,

wbdaz/Daz/Falsku