Nú blasir bráðum við kannanaskortur hjá okkur á leikjatölvuáhugamálinu, og er það í ykkar höndum að fyrirbyggja það.

Bið ég ykkur ágætu leikjatölvuáhugamenn, og konur, að senda inn ykkar bestu kannanir og ekki spara þær.

Þó eru skilyrðin eins og ávallt, að kannanir séu innihaldsríkar og góðar. Tengist áhugamálinu og “meiki sens.” Svo ekki sé talað um góða stafsetningu!

Lélegum könnunum verður umsvifalaust eytt, og er fólk vinsamlegast beðið um að vanda kannanirnar sínar.

Með von um flóð góðra kannana, Aage.