Eins og þið sjáið þá er öðruvísi um að lítast hérna á Leikjatölvuáhugamálinu en það var áður fyrr. Það er vegna þess að ég tók mig til og gerði breytingar og færði til.

Maður þarf að breyta til af og til finnst mér, svo maður fái ekki ógeð á uppstillingunum. Ég var farinn að fá smá leið á uppsetningu áhugamálsins eins og það var þannig ég ákvað að taka smá til :)

Er ég nokkuð sáttur við staðsetningu kubbana eins og þeir eru núna, en hvað finnst ykkur?
Er eitthvað sem mætti færa til eða breyta?

Endilega látið í ykkur heyra með því að svara <a href="http://www.hugi.is/leikjatolvur/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=1095645&iBoardID=331">þessum kork</a>, því þið eigið jafn mikinn rétt á að ráða þessu eins og hver annar sem stundar þetta áhugamál í miklu magni.