Ný PSP auglýsing: Rasismi? Sony hafa sett í gang auglýsingaherferð til að kynna nýja lit PSP vélarinnar… Hvítann. Ein af auglýsingum er eftirfarandi mynd sem á að sýna yfirburði hvítu PSP vélarinnar gagnkvart þeirri svörtu.

Margir vilja hinsvegar meina að þetta sé bölvaður rasismi og hafa m.a. NAACP heimtað að auglýsingin verði tekin niður.

Nú er jú sagt að það séu engar tilviljanir í auglýsingum, enda eru það sérfræðingar sem setja þetta saman og gera hana eins og hún er.. Þannig að ég spyr; Er hér verið að reyna að fá fólk til að kaupa nýja hvíta PSP vél eða eru Sony menn bara bölvaðir rasistar?

Hvað finnst ykkur?