Fyrir 2 dögum setti Acclaim af stað <a href="http://www.hugi.is/leikjatolvur/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=652749&iBoardID=331“ target=new>samkeppni. Hún fól í sér að 5 vinningshafar fengju að breyta nafninu sínu í Turok. Acclaim borgar fyrir nafnbreytinguna, og þú færð £500, Xbox leikjatölvu og eintak af Turok: Evolution.
Ég bjóst við að ef til vill myndu svona rúmlega nokkur hundruð heimskir leikjafíklar taka þátt, en þegar allt kemur til alls er áhuginn gríðarlegur! Eftir rétt rúmlega 12 klukkutíma, höfðu fleiri en 3000 manns sótt um að fá nafni sínu breytt í Turok. Umsóknum hefur verið skilað inn til www.mynameisturok.co.uk á bilinu 20-30 á hverri mínútu.
Annað hvort er athyglissýkin og peningagræðgin alveg að fara með fólk, eða þá að foreldrar ættu að vanda sig betur þegar það gefur börnum sínum nafn :þ
Aage the Toronto fan! <a href="http://www.nhl.com/“> NHL  -  Toronto Maple Leafs  - <a href=”http://www.hugi.is/hokki/"> HugaHokkí </a