Tveir vinir mínir voru svo ótrúlega fyndnir að þeir stálu xbox tölvunni minni og skildu eftir miða sem stóð á: We got your xbox og síðan 2 terrorist kallar að miða á xbox tölvu, þeir voru greinilega búnir að undirbúa þetta í dálítinn tíma því þeir voru búnir að fá leyfi frá foreldrum mínum til að fara inn til mín og taka tölvuna mína, þegar ég sá þetta fannst mér þetta alls ekkert fyndið!

Ég var búinn að hringja í þennan vin minn sem mér fannst líklegastur til að taka tölvuna mína en hann sagði að það hafi annar strákur verið búinn að tala um hversu fyndið það væri að taka tölvuna mína í djóki, ég fór og talaði við hann á msn, hann bara hló að þessu. Ég sagði síðan við vin minn að ég ætlaði að kæra þetta til lögreglu ef ég fengi ekki tölvuna til baka og þá varð hann nokkuð hræddur og viðurkenndi þetta kl 5 mínútur í 12 að kvöldi, ég fór heim til hans nokkuð pirraður og náði í tölvuna mína.

Bara að segja ykkur frá þessari slæmu lífsreynslu minni því ég hélt að það væri búið að ræna tölvunni minni, og hún var aðeins 1 mánaða gömul.