Sæl,

Væri frábært ef einhver gæti svarað þessum spurningum hjá mér.

1) Verð ég í alvöru að punga út 500 pkt fyrir Opera browserinn, eða er hægt að installa honum með disk somehow.., og er þess virði að hafa hann?

2) Er fólk almennt að kaupa leiki hérna á íslandi eða erlendis, amazon.. etc.

3) Ég var bara að fá mér þessa vél fyrir helgi, og vantar að vita hvaða leiki er must að eiga.
Ætla pottþétt að kaupa mér Zelda, þar sem ég elskaði ocarina of time.. en þeir leikir sem ég leita af eru multiplayer leikir, sem hægt er að spila í partýum eða með félögunum í bjór.

4) Hefur fólk góða reynslu að modda vélarnar sínar með þessum wiikey chippum og þeim sem eru í boði? er einhver sem selur þá kubba hér?

Fyrirfram þökk,