Ég veit að ég er alveg rosalega eftirá en ég fékk aldrei gameboy þegar ég var yngri og mér finnst það alveg rosalega leiðinlegt, hékk heima hjá öðru fólki til að spila super mario *roðn*

Er einhverstaðar hægt að fá gömul tölvurnar, ekki þessar elstu heldur þessar sem komu í lit? Ég er búin að leita inni á nintendo.is og þar eru einungis einhverjar nýjar tölvur á alveg 10 þúsund kall. Er hvergi hægt að fá bara þessar gömlu út í búð? verð ég að auglýsa eftir henni notaðri?

Takk takk