Jæja, þriðjudaginn (á morgun) verður önnur PDZ kvöldsena þar sem við ætlum að blasta hvorn annan í tætlur allt kvöldið.

Ég hef sent friend invites á alla Íslendinga sem eiga leikinn og hafa spilað hann eitthvað.

Ef ég er ekki á vinalistanum ykkar sendið friend invite á mig (Indigo X) og ég mun bæta ykkur við.

Við munum byrja að spila á morgun klukkan 20:00 og spila frameftir kvöldi.

Ég mun senda game invites á alla á vinalistanum mínum sem eru online um 20:00 leitið og ef fólk vill taka þátt eftir það er best að senda mér skilaboð og ég mun þá senda invite milli leikja.

Ekki móðgast ef ég svara ekki strax, ég mun svara um leið og tækifæri gefst ;)

Þetta var heljarinnar fjör síðast þegar við spiluðum og ég reikna með jafnvel skemmtilegra kvöldi núna.

Annars mæli ég með því að fólk fái sér nýju borðin þar sem við munum eflaust spila þau eins mikið og hægt er.

Sé ykkur sem flest/a annað kvöld.
Gamertag: Indigo X