Jæja, þið þarna úti, getur verið að einhver hérna lumi á sjálfstæðu framhaldi Goldeneye fyrir nintendo 64? Að mínu mati er Perfect Dark einn besti skotleikur sem ég hef spilað, amk í leikjatölvu, en því miður á ég ekki mitt eigið eintak, heldur hef þurft að fá með stopulum hætti lánað frá nördum sem ég þekki. Nú er spurt, er einhver til í að selja mér þennan ágæta leik, ég er reiðubúinn að greiða 5000kall fyrir, og ef þú býrð svo vel að geta selt mér aukafjarstýringu fyrir N64 get ég hækkað upp í kannski 7000kall… ekki slæmt á skólamánuðum? annars er verðið ekki endilega meitlað í stein, eins og Adolf Hitler sagði þá er ekkert deilumál of flókið að leysa þegar menn setjast niður og ræða málin af skynsemi. Hit me up!!