Ekki er langt síðan Grand Theft Auto: San Andreas kom út og er ég strax byrjaður að taka eftir fyrstu áhrifunum. Þetta er langt frá því að vera skot á GTA leikina, þar sem að ég spila leikinn og mér finnst hann frábær.

Margir vinir mínir og ég sjáfur komum seint í skólann oftar… fleiri skróp og meiri þreyta og minna lært heima. Þetta er nú dálítið fyndið verð ég nú að segja. Þetta nákvæmlega sama kom fyrir þegar Vice City kom út.

Ég þekki nokkra sem að spiluðu leikin til klukkan 3 um nóttina. Þar var ég á meðal

þeta endist örugglega í svona viku… en prófin eru að koma þannig að við verðum öll að passa okkur.
Arguing on the internet is like running the special olimpics…