Undanfarin 2 kvöld hef ég verið að lenda í því að leikir hjá mér slitni. Fæ svartan skjá og niðurtalningu. Svo virðist ég ekki komast í leik strax aftur. Ég hef verið í ESPN NFL 2K4 þegar þetta hefur gerst. Frekar pirrandi. Hefur verið eitthvað vesen á LIVE hjá einhverjum hérna? Þetta hefur gerst í leik við ástrala, frakka og englending þannig að þetta hlýtur að vera vandamál alls staðar eða bara hjá mér.

Var að spá í hvort að það væri eitthvað mess á útlandatengingunni, á ekki að vera kominn einhver nýr sæstrengur út… er kannski verið að vinna í honum?