Jæja, nú ætlar maður að reyna að gera alvöru úr því að modda xbox-ið eins og upprunalega var eina ástæðan fyrir því að ég keypti það.
Hef ákveðið að kaupa Xecuter Lite 2.2 plus, vil hafa þetta lóðningarlaust.

Er einhver hér á landi sem selur þennan kubb? Hef verið að leita mér að honum á netinu en ég á erfitt með að finna staði sem ekki rukka fyrir $30 í sendingarkostnað með einhverjum óþarfa FedEx sendingarmáta eða þá að kubburinn er langt yfir eðlilegu verði.

Hef ekkert á móti því að kaupa að utan, kaupi alla mína leiki og DVD af netinu og vildi gjarnan geta bjargað mér sjálfur með þetta en ef einhver er að selja þessa kubba hér á sanngjörnu verði eða getur bent mér á heimasíðu sem hefur ekki ofangreind vandamál væri ég mjög glaður.