Póstaði þessu líka á forsíðunni en ég nennti ekki að bíða eftir svari og það eru yfirleitt nokkuð margir inná þessu áhugamáli…

Getur einhver bent mér á heimasíðu sem er með nákvæma útlistun á tollgjöldum fyrir alla mögulega hluti?

Getur einhver sagt mér tollgjaldið fyrir leikjatölvur og tölvuleiki? Hefur einhver prófað að kaupa leikjatölvu að utan eins og t.d. USA eða Japan?
Er nefnilega með í bígerð að versla mér bandaríska GameCube vél um leið og ég á efni á henni.