Sæl, ekki oft sem maður gerir svona þræði en var að muna eftir mynd sem ég sá fyrir mörgum árum síðan og mig hefur alltaf langað til að sjá hana aftur en ég man ekki hvað hún heitir, er búinn að skoða langan lista yfir geimverumyndir á wikipedia en fann hana ekki þar. Ætla að lýsa öllu sem ég man eftir:

Myndin byrjar á því að venjulegt fólk er bara í kósíheitum að gera það sem fólk gerir, einn gæji er aðalpersónan. Eitt kvöldið fer að rigna svona grænum steinum út um allt, fólk tekur þá upp og fær svona “sjokk”. Flestir láta þetta bara í friði nema aðalgæjinn, hann verður háður steinunum (eða eitthvað, dno) og á endanum verður hann geðveikt subbulegur, tekur af sér húðina og er þá orðinn bleik geimvera með stór blá augu, þetta virðist vera mjög random en mig langar endilega að sjá hana aftur.

Með fyrirfram þökkum, Nerull.