Jáá enn eina ferðina er ég að fara yfir um að reyna að muna nafn á mynd!! Er búin að leita allstaðar!!

Það sem ég man er að þetta var stelpa sem var alltaf að flakka milli fósturheimila því mamma hennar var í fangelsi eða eitthvað álíka og man ekki hvar pabbi hennar var. Og ég man að á einu heimilinu reyndi konan að skjóta hana eða eitthvað því hún hélt að pabbinn væri að reyna við hana. Svo á öðru hélt hún að allt væri fullkomið en svo kom í ljós að mamman var geðveikt þunglynd og endaði með því að fremja sjálfsmorð. Og svo fór hún á eitthvað heimili þar sem konan sem ættleiddi hana var búin að ættleiða endalaust af krökkum og lét þau vinna fyrir sig eða eitthvað. Man ekkert hvernig hún endaði samt, mig minnir ógeðslega að Evan Rachel Wood hafi leikið stelpuna en ég leitaði að því og fann það ekki svo það getur verið að ég hafi rangt fyrir mér..

Veit einhver hvað þessi mynd heitir? :)