Ég hef séð þessa mynd og hún var kannski ekki bent hin besta en rök gagnrýnanda á Mbl.is eru útí hróa.. Og svo fær myndin 1 stjörnu.

Gagnrýnandi, Heiða Jóhannsdóttir, hleypir sínu feminisma eðli fram við hvert tækifæri. Hún harðlega gagnrýnir myndina af því að það er gert grín af kvennfólki. Það fer greinilega fyrir brjóstið á henni ósanngirnin í því að kvennfólk fái tennisbolta í hausinn í myndinni á meðan karlmenn lenda í engu slíku.

Jafnvel þótt ég geti varla verið annað en sammála um frekar grunna og slappa brandara þá er hennar helsta áhyggjumál greinilega kynferðislegu brandararnir og heimskupör kvenna sem sýnd eru í myndinni.

Leiðinlegt svona…