Nr. 1
Þessi mynd markar upphaf hins morðóða húmorista Freddy Krueger.
Eins og flestir ættu að vita þá var Freddy barnamorðingi áður en hann var brenndur inni í skúrnum sínum. Þegar hann er að brenna inni koma til hans þrír draumadjöflar sem bjóða honum þá krafta að geta komið inni í drauma hjá fólki og myrt þau þar sem þau eru í fastasvefni (ekki sýnt í mynd númer 1 heldur var þetta sýnt í mynd númer 6). Hann tekur þessu boði og ákveður að hefna sín á fólkinu sem brenndi hann inni með því að drepa börnin þeirra.
Þegar hann er búinn að drepa þrjá unglinga og eina mömmu, er hann drepinn af Nancy.

Geðveik mynd sem allir sem hafa gaman af góðum hryllingsmyndum eiga að sjá, engar undankomuleiðir með það. Robert Englund sýnir snilldarleik sem Freddy Krueger og ekki spillir að hafa Heather Langenkamp sem Nancy (aðalstelpuna).
Johnny Depp leikur líka í þesasri mynd, og var þetta fyrsta myndin sem hann lék í, þeir sem hafa séð þessa mynd en vita ekki hvern hann leikur þá leikur hann gaurinn sem er dreginn ofan í rúmi og allt blóðið fer upp í loftið og á veggina.