Ég tók þetta af tilverunni, það er best að höfundur þessa bréfs sé nefndur.

From: “Benedikt G. Waage”
Date: Fös feb 7, 2003 14:27:10 Atlantic/Reykjavik
Subject: Bíó - alltof dýrt!!

Ástæðan sem forráðamenn kvikmyndahúsa gáfu fyrir hækkunum á miðaverði á
sínum tíma var að dollarinn væri svo hár, og það var rétt, dollarinn fór
upp í 112 krónur á tímabili og því var rík ástæða fyrir þessu miðaverði.
En nú stendur dollarinn í tæpum 77 krónum, hefur lækkað um 31% síðan hann
var hæstur en ekkert bólar á verðlækkunum.
Sýnum vilja okkar í verki og sleppum því að fara í bíó dagana 13. - 23.
febrúar, sýnum að við séum ekki sátt við þetta verð og krefjumst úrbóta.

Að sjálfsögðu fellur þetta “verkfall” niður ef miðaverð lækkar á
tímabilinu.
Sendið þetta til allra sem þið þekkið fyrir 13. febrúar.

p.s. Til að þessi áskorun verði auðlesnari mæli ég með því að innihaldið sé
afritað í nýtt skeyti við hverja áframsendingu, annars fyllist pósturinn
bara af netföngum og > merkjum


Ég gæti ekki verið meira sammála! Tökum okkur nú saman og sleppum því að fara í bíó!!

Baráttukveðju