Ég hafði mjög miklar væntingar fyrir þessa mynd og ég get sagt ykkur það, að ég varð sko ekki fyrir neinum vonbrigðum!! Þetta er án efa ein besta mynd sem ég hef séð! Myndin segir frá draumum fjögurra persóna sem verða fíkn að bráð. Vegna þessara fíkna umbreytast draumar þeirra í hrylling og spillingu og liggur leiðin einungis til sjálfstortímingar. Ein þeirra er gömul kona sem verður háð pillum sem hún notar til að megra sig þegar hún heldur að hún sé að komast í uppáhalds sjánvarpsþáttinn sinn. Sonur hennar, Harry og besti vinur eru heróínfíklar en dreymir um að selja sjálfir. Harry's er sömuleiðis fíkill sem aftur á móti dreymir um að stofna fatabúð. Ég hef aldrei séð neina mynd sem lýsir fíkniefnum jafnvel, þegar líður á myndina verður óþægilegra að horfa á myndina en maður getur samt ekki litið undan.
Það er líka mjög óvenjulegur stíll yfir myndinni sem ég heillast mjög af, flottar klippingar og aldrei hef ég séð jafn góðan leik
og leikur gömlu konunnar (Ellen Burstyn), enda fékk hún óskarstilnefningu! Aðrir aðalleikarar eru Jared Leto, Jennifer Connelly og Marlon Wayans, og standa þeir sig líka frábærlega! Tónlistin í myndinni er líka allveg frábær og gerir mjög mikið fyrir myndina!
Þetta er mynd sem ég mæli hiklaust með fyrir alla sem eru eldri en 14-15 ára.. þetta er það ógeðsleg mynd á köflum að ég efast um að hún sé við hæfi einhverra sem eru yngri. Hún er það góð að ég horfði á hana aftur strax daginn eftir! Fimm stjörnur af fimm!!!

*****/*****