The Texas Chain Saw Massacre (spoiler). Ég ætla að byrja á að segja að þessi mynd er betri en ég bjóst við því ég hélt að þetta væri BARA kjaftæði (en langaði samt að sjá'ana).

Ég fór niður í VÍDEÓHÖLLINA og var bara að skoða hvað ég ætti að kaupa og rakst á þessa mynd og skellti mér á hana og aðra mynd (HalloweeN) ég átti ekki mikin pening en hafði alltaf haft mikin áhuga á að sjá þessa til teknu mynd svo að ég tók hana og kláraði að horfð á hana fyrir svona 15 mínútum.

Þá er best að byrja á sjálfri greininni:
Þessi mynd fjallar um stelpu (man ekki nafnið), bróðir hennar, kærastann og tvo vini þeirra (stelpa og strákur). Þau eru í einhverju ferðalagi þegar bíllin synir að það sé ekki mikið eftir af bensíni í tanknum. Þau fara á einhverja bensínstöð og ætla að fá bensín en það er búið og það eru 12-24 tímar þangað til að meira bensín kemur. Þau ákveða að fara í eithvað gamalt hús sem pabbi stelpunnar (sú sem er aðalpersónan) á(tti).
Þegar þau eru komin í húsið og búin að koma sér fyrir ákveða vinirnir (stelpan og strákurinn) að leita að eithverju drasli til að synda í. Þau labba og labba en finna ekkert vatn svo að þau halda áfram að labba og heyra þá í vélum og ætla að gá hvort þau geti keypt bensín hjá fólkinu sem allur hávaðinn er hjá en þegar þau koma að eithverju húsi þarna er enginn nálægur. Þau fara inní húsið og sjá kall með leður grímu (Leatherface). Hann drepur þau og……

Ég vill ekki eiðileggja meira fyrir ykkur en ef þið viljið að ég haldi áfram sendið þá bara e-mail til mín.

AcHONDAR