Shadow of the Vampire/Nosferatu Shadow of the Vampire/Nosferatu

Kvikmynd: Shadow of the Vampire
Leikstýrð af: E. Elias Merhige
Framleidd árið: 2000
Aðalleikarar: John Malkovich, William Dafoe, Udo Kier, Catherine McCormack
Gerð: Drama/Horror
Lengd: 92

ThorX: ***1/2/****
IMDB: 6.9

Kvikmynd: Nosferatu
Leikstýrð af: F.W. Murnau
Framleidd árið: 1922
Aðalleikarar: Max Schreck, Alexander Granach, Gustav von Wangenheim, Greta Schröder
Gerð: Horror
Lengd: 94

ThorX: Hef ekki séð
IMDB: 8.2


Í þessari grein vill ég byrja á að fjalla um Nosferatu, myndin sem Shadow of the Vampire fjallar um. Myndin heitir reyndar Nosferatu, eine Symphonie des Grauens gerð í Þýskalandi árið 1922. Nosferatu þýðir í langri þýðingu “plague carrier”. Nosferatu er leikstýrt af F.W. Murnau og eru helstu leikarar Max Schreck, Greta Schröder og Gustav von Wangenheim.

Eins og margir vita þá fjallar SotV um þegar F.W. Murnau (John Malkovich) gerir stórmyndina Nosferatu. Þegar hann fer að gera myndina þá fær hann einhvern undarlegasta leikara sem þekkst hefur til að leika Count Orlok vampíruna hann Max Schreck (William Dafoe). Max þessi hefur þann undarlega vana á að leggjast djúpt inn í persónu sína og er persónan meðan öll myndin er gerð. En þegar menn fara að týna lífi þá fara menn að efast um hvort þessi Max sé mannvera! Þessi mynd er bara ein sú besta horror movie sem ég hef séð þó að hún sé ekkert það ógnvekjandi. Svo flott að sjá hvernig myndar voru gerðar í den. William Dafoe er snillingur sem var frekar óþekkjanlegur í þessu frábæra vampírugervi. Meira þarf ég ekki að segja um sögu myndarinnar en nú koma spoilerar!!


!!SPOILER!!

Þeir sem hafa séð þessa mynd vita hvernig hún endar. Count Orlok fer á killing spree þ.e.a.s drepur allt crewið hans Murnau, nema hann? Það var eins og Murnau héldi virkilega að Orlok hefði ekki drepið alla, þetta hefði bara verið plat. Veit einhver hvort þessi Max Schreck hefði í alvörunni, þegar Nosferatu var gerð, kafað svona djúpt inn í persónuna að hann var Count Orlok meðan myndin var gerð? Hefur einhver séð Nosferatu?
<B>Azure The Fat Monkey</B>