Já, JASON VOOHREES birtist í 5 sec. í \“FRIDAY THE 13th\” sem gaurinn sem dregur Alice niður í vatnið. Svo birtist hann í númer 2 með koddaver á hausnum til að hefna mömmu sinnar sem var drepin í #1. Þessar myndir eru að verða að algeru bulli!!! Tek sem dæmi hann er 9 ára þegar hann \“drukknar\” svo verður hann fullvaxta og ekki neitt gáfaður. Hann byrjar að drepa og drepa og aldrei sama hvað hann gerir þá fattar einginn hver það er sem er að drepa alla í myndunum því þau fatta aldrei að bestu vinir/vinkonur þeirra eru dauðir/dauðar fyrr en þau eru sjálf drepinn og ef þau eru ekki drepin eru þau drepin í næstu mynd á eftir. Hann er búinn að koma fram í 10 myndum núna og sú nýjasta heitir JASON X og gerist árið 2477. Myndin JASON X gerist á geimskipi árið 2477 (var búinn að minnast á fyrr í greininni) söguþráðurinn er í meginmáli sá að hópur vísinda manna finnur Jason og einhverja aðra manneskju á jörðinni (jörðin á að vera dauð) og álpast til að lífga hann við. Hann lifnar við og byrjar að drepa og drepa. Í þessari mynd fær hann nýjan búninig úr áli, járni og \“spandex\” efni. Mér persónulega finnst þessar myndir frábærar og bíð spentur eftir því að hún komi til íslands þótt svo að þær séu algert bull.