Ghosts of Mars Jæja góðir hálsar ég sá Ghosts of Mars nú fyrir stuttu og ætla ég að fjalla örlítið um hana hér að neðan. —Ghosts of Mars fjallar um sérstakan lögreglu hóp á plánetuni Mars sem Melanie “Natasha Henstridge” leiðir. Þau fara á littla fanganýlendu til þess að flytja hættulegan fanga að nafni Williams “Ice cube” milli fangelsa. Í ljós kemur að stór hópur starfsmanna á stöðini hefur drepin á hryllilegan hátt og ekki er allt sem sýnist. Komast Melianie og vinir hennar að því að þeir sem eru en lifandi á stöðini eru andsettnir af einhvers konar afli sem vill einungis drepa aðra menn “kannast eitthvað við þetta :)”Melanie fær þá Williams og hina fangana til þess að aðstoða sig við að drepa þessu óvelkomnu gesti og komast burt af stöðini lifandi—. Ghosts of Mars er nokkurn vegin samblanda af myndini The Thing og Assult on Precinct 13 sem báðar eru gerðar John Carpenter. En ég verð að segja að Ghosts of Mars er en ein sönnun á því að þó mér þykir erfitt að segja þetta en að John Carpenter sé búinn að vera. Myndin spannar B. mynda leikara hóp sem sýnir hæfileika á C. Mynda leikara hóp og spennan er sama sem engin. Handritið og músíkin er eftir John Carpenter og líkist handritið eins og byrjunar uppkast kvikmyndanema og músíkin er svo langt frá því að vera í takt við spennuna “sem ég var að nefna að væri nákvæmlega engin”. Ghosts of Mars er svo langt frá því að vera eitthvað nýtt fyrir utan það að hún gerist á Mars og vona ég svo innilega að John Carpenter komi með alla vega eitt comeback áður en hann hættir. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að þessi mynd er alveg örgglega ekki þess virði að sjá í bíó og ef ég myndi ráða þá væri best að bíða eftir henni á videoi eða nei frekar að sjá hana bara í sjónvarpinu.