Eftirlitsnefnd Körfuknattleikssambands Íslands, KKÍ, hefur ákveðið að sekta úrvalsdeildarlið Hamars um kr. 50.000 þar sem félagið notaði Pétur Ingvarsson þjálfara liðsins í leik Hamars og KR sem fram fór 29. febrúar sl. Með því að nota Pétur í þessum leik fór Hamar yfir launaþakið í febrúar og er því sektað. Frá þessu er greint á heimasíðu KKÍ

tekið af mbl.is