Orlando Magic vann Philadelpiu SeventySixers í tvíframlengdum leik í gærkvöld. Þótt að Allen Iverson hafi verið með 47 stig unnu Orlando Magic leikinn 117-123.Darrel Armstrong,leikmaður Magic, Var með 34 stig en 13 af þeim skoraði hann í seinni framlengingunni. Einnig var hann með 13 stoðsendingar og 8 fráköst.
Tracy McGrady var með 25 stig,öll í venlulegum leiktíma en Mike Miller var með 24 stig, þar af 16 í þriðja leikhluta. Fyrir Sixers skoraði Theo Ratliff 21 stig og tók 13 fráköst og Tyrone Hill skoraði 15 stig og tók 10 fráköst. Orlando er nú búið að vinna 3 leiki í röð og er með hlutfallið 22-23 í unnum-töpuðum leikjum en Philadelphia er búið að tapa 12 leikjum en vinna 35.