Michael Jordan slær af sér slyðruorðið .... Nú var komið að hefndum. Eftir hinn fræga “we stink” leik á móti Cleveland þar sem Ricky Davis ( hver er það eiginlega ? ) var með ruslkjaft þegar Cleveland völtuðu fyrir Washington.
Þetta átti ekki að endurtaka sig !!! Michael Jordan skoraði 24 stig í fyrri hálfleik og 16 í þeim síðari og samtals 40 stig í 94-85 sigri Washington. Michael Jordan sagðist gleyma svona hlutum seint. Michael Jordan sagði “Ég man eftir honum fljúgandi og troðandi þegar þeir voru 20 stigum yfir” Þetta er ekki einn af þeim hlutum sem þú vilt láta endurtaka sig, þannig að besta leiðin til þess að koma í veg fyrir það er að koma honum í villuvandræði þannig að hann þurfi að setjast niður og horfa á OKKUR. Ricky Davis var með aðeins sjö stig og fjórar villur í þetta skiptið. Það niðurlægir enginn Michael Jordan tvisvar sinnum !!!!
John Lucas þjálfari Cleveland var búinn að segja leikmönnum sínum að Michael Jordan gleymdi seint en þeir vildu ekki trúa honum en ég held þeir trúi mér núna.
Michael Jordan hitti mjög vel í leiknum 18 skotum af 29 sem er 62 % skotnýting. Jordan sýndi gamla takta þegar hann var þrídekkaður og hitti um leið og brotið var á honum, þvílíkur snillingur !!!!