1. júlí verður haldið körfuboltamót á Miklatúni. Mótið fer fram á körfuboltavellinum á Miklatúni, spilað verður á 4 körfur. Mótið er götuboltamót með 3 á móti 3 fyrirkomulagi. Að mótinu koma: Egils, Reebok og X-ið 977.

Allir aldurshópar leyfðir á mótinu en ekki verður skipt í aldursflokka. Það verða 40 lið sem skrá sig og eru 3 – 4 í hverju liði. Mótið spilast þannig að það verða 8 riðlar, 5 lið í hverjum riðli og munu sigurvegarar úr riðlunum mætast í 8 liða-úrslitum, undanúrslitum og svo úrslitaleikur.
Það kostar 2000,- kr á lið og þarf að skrá sitt lið á minskodun@977.is.

Sverrir Bergmann mun sjá um halda utan um keppnina. Mótið hefst stundvíslega klukkan 11:00 og er áætlað að vera lokið klukkan 15:30.

X-ið mun fjalla um mótið í sinni dagskrá og mun Valtýr Björn gera mótinu góð skil í þættinum sínum “Mín skoðun”.
“I chose not to choose life. I chose somethin' else. And the reasons? There are no reasons. Who needs reasons when you've got heroin? ”