Kvennaboltinn Ég skora á fólk að fjalla meira um kvennaboltann hérna. Senda inn greinar um leiki ofl. Þessi síða er ekki bara fyrir karlana! Stelpurnar hafa líka ýmislegt fram að færa og Símadeild kvenna er æsispennandi í ár.

E.s. Fyrir tímabilið tók einn Huganotandi sig til og dæmdi allar opinberu heimasíður félaganna í Símadeildinni og gaf þeim einkunn. Nú er deildin hálfnuð og væri gaman ef einhver væri til í að leika sama leik og bregða sér í hlutverk gagnrýnanda. Ef svo er þá skaltu láta mig vita.

Kveðja
hress