Enska deildin Peter Reid hefur lofað stuðningsmönnum Sunderland nýjum andlitum á Leikvang ljósanna fyrir næsta tímabil. Vitað er af áhuga hans á nokkrum leikmönnum í Argentínu. Metnaður Reid liggur í því að geta veitt sterkustu liðum úrvalsdeildarinnar harðari keppni, og þá sérstaklega Man Utd.