Mig langaði að skapa smá umræðu í kringum þessa könnun mína.
Leikmennirnir sem ég nefni þar eru þeir sem mér finnst standa uppúr. Ég horfi auðvitað ekki á alla leikina þannig að ég veit ekki mikið um unglinga Stoke eða WBA o.frv.
Þessir hinsvegar eru reynslulitlir og nýbyrjaðir að spila og þess vegna eru menn eins og Walcott, Vela, Bale o.fl ekki nefndir.

Hver finnst ykkur standa upp úr og af hverju?

Þar sem ég er Man Utd maður að þá hef ég fylgst mest með þeim. Sjálfur kaus ég Possebon fram yfir tvíburana því hann hefur sýnt sömu hæfni og Anderson gerði í fyrra.

Finnst ykkur svo vanta einhvern þarna? Svona honourable mention eða eitthvað slíkt?
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”