Engu að síður, þá geturðu ekki ætlast til þess að stuðningsmenn annarra liða hætti að hafa trú á sínu liði og því að efstu liðunum fipist og tapi stigum?
Sjálfur styð ég Manchester United, en finnst þetta samt óþarflega gróf athugasemd hjá þér og eins virkar þetta eins og skot einungis á fylgismenn Liverpool.
Hvað með þá sem svöruðu könnunni með Arsenal eða Wigan?
Sumir hafa bara óbilandi trú á sínu liði og leyfist þeim það alveg. Þar af leiðandi finnst mér með öllu óþarft að beina spjótum sínum að eingöngu einu liði eftir könnun sem fer fram þegar deildin er rétt rúmlega hálfnuð!
Það eru margir leikir eftir og margt getur enn gerst.