Eftirfarandi texti er fenginn af www.arsenal.is
Fyrir þá sem hafa áhuga.


ARSENALKLÚBBS DAGUR
AÐALFUNDUR 18. október.
ARSENAL VS CHELSEA – AFMÆLISKAFFI

Nú gerum við okkur dagamun í tilefni 21. árs afmælis Arsenalklúbbsins. Arsenalmenn og konur, allir klúbbfélagar ungir sem aldnir mætum og skemmtum okkur.

Dagskráin hefst kl. 14.00, með ýmsu sprelli fyrir unga fólkið, knattkeppni, vítakeppni og spurningakeppni fyrir alla krakka á öllum aldri, góð verðlaun og þátttökuviðurkenningar.

Leikur dagsins við Chelsea hefst kl. 15.00, stemmningin verður rosaleg, verður Eiður með? Ef hann verður með, getur hann skorað?
Allir klúbbfélagar sem mæta fá afhentan frían happdrættismiða, dregið verður um skemmtilega vinninga í hálfleik.
Afmæliskaffihlaðborð framsett á meðan á leik stendur í boði Mekka Sport, Vífilfells og Arsenalklúbbsins. Tilboð á drykkjum fyrir þá eldri á barnum.

Aðalfundarboð.

Aðalfundur, sá fyrsti í sögunni, verður haldinn kl. 18.00 – 19.00, í salnum uppi. Eingöngu fyrir þá félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið, hægt verður að greiða það á staðnum.

Eftir fund verður í boði fyrir þá sem þess óska, sérstakt tilboð á grillmat og öli, horfum á gamla og góða leiki og skemmtum okkur saman fram eftir kvöldi spilum Pool eða ekki.

Takið þennan dag frá.

Þessi dagur er þann 18. október 2003, kl 14.00 – 19.00 (fyrsti laugardagur eftir afmæli sem er 15.okt) allir taka hann frá fyrir sig og sína. Staður Mekka Sport bar, Dugguvogi 6, 104 Reykjavík, sími 568 1000. Heimasíða www.mekkasport.is.