KR leikur í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag gegn Pyunik frá Armeníu og hefst leikurinn korter yfir þrjú að íslenskum tíma og verður lýst beint á útvarpi Sögu. Kristinn Hafliðason miðvallarleikmaðurinn sterki í liði KR hefur kvartað undan eymslum í baki , en reiknað er með að hann verið klár í slaginn í dag. Forráðamenn KR eiga von á erfiðum leik í Jerevan og munu fyrst og síðast leggja áherslu á varnarleikinn og freista þess að ná hagstæðum úrslitum. Forráðamenn armenska liðsins eru sigurvissir fyrir leikinn gegn KR.
Stjórnandi á