Steed Malbranque, leikmaður Fulham hefur gefið það út að hann vilji fara frá félaginu í sumar. Þessi marksækni miðjumaður hefur verið orðaður töluvert við Liverpool og líklegt má teljast að Gerard Houllier reyni að nálgast hann ásamt félaga hans, Steve Finnan.