Manchester United og Manchester City kepptu á laugardaginn og var þessi leikur erfiður fyrir ensku meistarana þar sem að mikil barátta var í City mönnum og máttu Manchester menn prísa sig sæla með það að vinna þennan leik. Leikurinn fór 0-1 fyrir United og skoraði Beckham markið úr hreint út sagt glæsilegri aukaspyrnu á annari mínútu. Manchester liðið var ekki að spila mjög vel og áttu City menn mörg dauðafæri sem þeir voru óheppnir að nýta ekki. United átti sín dauðafæri líka og áttu að skora meira en lök frammistaða Dwight York í leiknum varð til þess að þeir skoruðu ekki.