Arnar Gunnlaugsson skoraði mark Lecester á móti Newcastle þegar liðin áttust við í dag. Arnar kom inná sem varamaður á 55. mínútu og skoraði markið á 63. mín en það dugði ekki til því Gary Speed skoraði jöfnunarmark Newcastle á 75. mín. Lecester er núna í 3. sæti deildarinnar með 23 stig.