Guðmundur Benediktsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Íslandsmeistara KR. Fyrr í vikunni leit út fyrir að Guðmundur væri á leið frá félaginu, en vilji til áframhaldandi samstarfs var fyrir hendi hjá báðum aðilum. Í lok Íslandsmótsins í ár buðu KR-ingar Guðmundi samning, en Guðmundur gerði KR-ingum gagntilboð sem KR-ingum þótti óraunhæft. En það varð úr að Guðmundur og KR fóru millivegin og Guðmundur mun leika með KR næstu þrjú árin.